Erlent

Tvö lík finnast til viðbótar

Lögreglumenn fundu tvö önnur lík myrtra vændiskvenna í nágrenni Ipswich í gær.
Lögreglumenn fundu tvö önnur lík myrtra vændiskvenna í nágrenni Ipswich í gær. MYND/AP

Lögreglan í Suffolk í Bretlandi fann í gær lík tveggja kvenna til viðbótar þeim þrem sem fundist hafa í nágrenni Ipswich á undanförnum dögum. Konurnar störfuðu allar sem vændiskonur í Ipswich borg og voru allar myrtar.

Ekki var búið að bera kennsl á líkin í gærkvöldi, en sagði lögregluforinginn Stewart Gull að líklegt þætti að um tvær konur sem saknað hefur verið sé að ræða.

Lögreglan segir að grunur leiki á að um raðmorðingja sé að ræða og biður vændiskonur, sem og aðrar konur, um að forðast að vera einar á ferli í Ipswich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×