Erlent

Herða ber reglur um ökunám

Danir hafa, líkt og Íslendingar, áhyggjur af fjölmörgum banaslysum ungs fólks í umferðinni.
Danir hafa, líkt og Íslendingar, áhyggjur af fjölmörgum banaslysum ungs fólks í umferðinni.

Sífellt fleiri Danir á aldrinum 18 til 24 ára láta lífið á götum Danmerkur og í Politiken um helgina kölluðu sérfræðingar eftir því að ökunám þar í landi yrði hert til muna.

Ný rannsókn sýnir að ungir ökumenn falla yfirleitt í annan af tveimur hópum – varfærnir ökumenn annars vegar og þeir sem taka áhættu hins vegar. Bíða hinir síðarnefndu oftar bana í umferðarslysum, segir í niðurstöðum rannsóknarinnar. Hinir fyrrnefndu eru oftar menntskælingar, en hinir síðarnefndu eru gjarnan atvinnulausir, í iðnnámi eða í danska hernum.

Alls hafa 63 Danir í þessum aldurshópi farist í umferðinni í ár, þar af sjö þeirra síðastliðinn föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×