Erlent

Trúðu frétt um flæmskt sjálfstæði

Vörubíll ekur hjá vegskiltum, þar sem búið er að krota yfir frönsk staðanöfn í Sint Genesius-Rode í flæmska hluta Belgíu.
Vörubíll ekur hjá vegskiltum, þar sem búið er að krota yfir frönsk staðanöfn í Sint Genesius-Rode í flæmska hluta Belgíu. MYND/AP

Stjórnmálaleiðtogar í Belgíu brugðust ókvæða við í gær eftir að í fyrrakvöld var sendur út á besta tíma á frönskumælandi rás ríkissjónvarpsins leikinn þáttur sem leit út fyrir að vera raunverulegur aukafréttatími sem skotið var inn í dagskrána. Í „fréttatímanum“ var sagt frá því að Flæmingjar í hollensku-mælandi norðurhluta landsins hefðu lýst yfir fullu sjálfstæði og konungshjónin væru flúin úr landi.

Forviða hringdu þúsundir sjónvarpsáhorfenda í stöðina, RTBF, á meðan á útsendingunni stóð og starfsmenn erlendra sendiráða leituðu skýringa hjá belgískum yfirvöldum.

„Áhyggjufullir sendiherrar spurðu hvað þeir ættu að tilkynna heim til höfuðborga sinna,“ sagði Anne-Marie Lizin, forseti öldungadeildar Belgíuþings. „Þessi skáldskapur var tekinn trúanlega og hann skapaði skelfilega ímynd af landinu.“

Talsmenn RTBF sögðu viðbrögðin sýna þörfina á alvarlegri umræðu um framtíð belgíska ríkisins. Síðastliðin tuttugu ár hafa samskipti Flæmingja og Vallóna verið tiltölulega góð, eftir að ákveðið var að gera landið að sambandsríki þar sem hver málhópur - flæmsku-, frönsku- og þýskumælandi - fengi mikil sjálfstjórnarréttindi. Um fjórðungur Flæmingja styður hægriflokkinn Flæmskir hagsmunir, sem berst fyrir algerum aðskilnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×