Trúðu frétt um flæmskt sjálfstæði 15. desember 2006 06:15 Vörubíll ekur hjá vegskiltum, þar sem búið er að krota yfir frönsk staðanöfn í Sint Genesius-Rode í flæmska hluta Belgíu. MYND/AP
Stjórnmálaleiðtogar í Belgíu brugðust ókvæða við í gær eftir að í fyrrakvöld var sendur út á besta tíma á frönskumælandi rás ríkissjónvarpsins leikinn þáttur sem leit út fyrir að vera raunverulegur aukafréttatími sem skotið var inn í dagskrána. Í „fréttatímanum“ var sagt frá því að Flæmingjar í hollensku-mælandi norðurhluta landsins hefðu lýst yfir fullu sjálfstæði og konungshjónin væru flúin úr landi. Forviða hringdu þúsundir sjónvarpsáhorfenda í stöðina, RTBF, á meðan á útsendingunni stóð og starfsmenn erlendra sendiráða leituðu skýringa hjá belgískum yfirvöldum. „Áhyggjufullir sendiherrar spurðu hvað þeir ættu að tilkynna heim til höfuðborga sinna,“ sagði Anne-Marie Lizin, forseti öldungadeildar Belgíuþings. „Þessi skáldskapur var tekinn trúanlega og hann skapaði skelfilega ímynd af landinu.“ Talsmenn RTBF sögðu viðbrögðin sýna þörfina á alvarlegri umræðu um framtíð belgíska ríkisins. Síðastliðin tuttugu ár hafa samskipti Flæmingja og Vallóna verið tiltölulega góð, eftir að ákveðið var að gera landið að sambandsríki þar sem hver málhópur - flæmsku-, frönsku- og þýskumælandi - fengi mikil sjálfstjórnarréttindi. Um fjórðungur Flæmingja styður hægriflokkinn Flæmskir hagsmunir, sem berst fyrir algerum aðskilnaði.
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Erlent Fleiri fréttir Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Sjá meira