Erlent

Tvö þúsund ábendingar um fjöldamorðingjann í Ipswich

MYND/AP

Lögregla hefur hert nætureftirlit á götum Ipswich í Bretlandi til muna. Fimm vændiskonur hafa fundist myrtar í næsta nágrenni í mánuðinum og óttast að morðingi þeirra fremji fleiri morð. Lögregla hefur einnig komið fyrir upplýsingabásum víðsvegar um bæinn þangað sem almenningur getur snúið sér með upplýsingar tengdar morðunum.

Á blaðamannafundi í gær óskaði lögreglan eftir upplýsingum sem gætu leitt til handtöku og hafa rúmlega tvö þúsund ábendingar þegar borist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×