Erlent

Átök milli andstæðinga og fylgjenda Pinochet

Til átaka kom í Santiago, höfuðborg Chile, í gærkvöldi eftir að fréttir bárust af því að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, væri látinn.  Pinochet var níutíu og eins árs. Hann fékk fékk alvarlegt hjartaáfall fyrir viku. Andstæðingar Pinochets fögnuðu dauða hans í höfuðborginni á meðan stuðningsmenn syrgðu hann.

Hópunum tveimur laust saman og þurfti lögregla að sprauta vatni og táragasi á fólkið til að stilla til friðar. Fjölmargir voru handteknir. Ekki er vitað hvort einhverjir særðust í átökunum. Pinochet fær ekki viðhafnarútför og þjóðarsorg verður ekki lýst yfir í landinu. Flaggað verður þó í hálfa stöng í opinberum byggingum í Chile í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×