Erlent

Líf Pinochet hangir á bláþræði

Næstu 48 klukkustundirnar skera úr hvort Pinochet mun lifa eða ei og ekki verður ráðist í aðra skurðaðgerð á honum. Þessu lýsti yfirlæknir hjartadeildar hersjúkrahússins í Santiago yfir í nótt að íslenskum tíma.

Eins og kunnugt er fékk fyrrum hershöfðinginn og forseti Chile, Augusto Pinochet, hjartaáfall á laugardagsmorgun og var fluttur í skyndi á sjúkrahús þar sem líf hans hékk á bláþræði. Hann gekkst undir hjartaþræðingu til þess að víkka út þröngar æðar við hjartað og átti í framhaldi af því að gangast undir opna skurðaðgerð í þeirri von að bjarga mætti lífi hans.

"Við erum í höndum Guðs og læknanna" lýsti Marco Antonio Pinochet, sonur hershöfðingjans, yfir í gærkvöldi aðspurður um heilsufar föður hans.

Pinochet, sem er orðinn 91 árs, hafði verið í stofufangelsi frá því í síðustu viku þegar honum voru birtar ákærur vegna lífláts tveggja lífvarða Salvadors Allende, forseta Chile sem Pinochet og herlið hans steypti af stóli árið 1973.

Pinochet ríkti harðri hendi í Chile árin 1973 til 1990 og hefur verið sakaður um margvísleg mannréttindabrot og hrottaskap.

Heilsu hans hefur hrakað á síðustu árum. Hann hefur notað gangráð árum saman, hefur fengið heilablóðfall nokkrum sinnum og greindist með væga heilabilun. Bágt heilsufar hans hefur orðið til þess að fallið hefur verið frá réttarhöldum, bæði í Bretlandi og í Chile, vegna mannréttindabrota í stjórnartíð hans.

Hersjúkrahúsið lýsti því yfir að frekari upplýsingar um heilsu Pinochet verða veittar í dag




Fleiri fréttir

Sjá meira


×