Erlent

Órangútönum bjargað úr skógareldum

Órangútanar á Borneó eru í útrýmingarhættu.
Órangútanar á Borneó eru í útrýmingarhættu. MYND/af netinu

Tugir órangútana sem eru í útrýmingarhættu hafa þurft að flýja náttúruleg heimkynni sín í frumskógum á Borneó-eyju í Indónesíu vegna elda sem bændur kveikja til að hreinsa land fyrir akra. Þykkan reyk leggur yfir frumskógana og er fáum dýrum vært þar. Dýraverndunarsamtök björguðu nokkrum þeirra og huguðu að þeim vegna reykeitrunar og brunasára.

Þegar þeir ná sér eru þeir fluttir í ný heimkynni og hjálpað að aðlagast þar. Eldar bændanna brenna á hverju ári og hefur indónesíska ríkisstjórnin verið gangrýnd fyrir að bregðast ekki við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×