„Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Samúel Karl Ólason skrifar 2. febrúar 2026 12:04 Donald Trump á fundi með sjeiknum Mohamed bin Zayed Al Nahyan, forseta Sameinuðu arabísku furstadæmana og öðrum embættismönnum í maí í fyrra. Getty/Win McNamee Nokkrum dögum áður en Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna á nýjan leik í janúar í fyrra, keyptu sjeik úr konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og aðrir fjárfestar þaðan 49 prósenta hlut í rafmyntafélagi fjölskyldu forsetans.
Kaupin sem leidd voru af sjeiknum Tahnoon bin Zaeyd Al Nahyan, sem gjarnan er kallaður „njósnasjeikinn“, kostuðu hálfan milljarð dala. Stuttu síðar fengu furstadæmin leyfi til að kaupa háþróaðar tölvuflögur sem Bandaríkjamenn höfðu áður neitað að selja þeim. Tahnoon er bróðir forseta furstadæmanna, þjóðaröryggisráðgjafi ríkisstjórnarinnar og forstjóri stærsta fjárfestingasjóðs ríkisins. Hálfur milljarður dala samsvarar um 61,3 milljörðum króna. Í grein Wall Street Journal segir að viðskiptin, sem hafa ekki verið opinberuð áður, séu fordæmalaus í sögu Bandaríkjanna. Hátt settur embættismaður annars ríkis hafi keypt stærðarinnar hlut í félagi verðandi forseta Bandaríkjanna. Tahnoon hafði um nokkurt skeið reynt að fá leyfi yfirvalda í Bandaríkjunum til að kaupa öflugustu tölvuflögurnar sem ætlaðar eru til reksturs gervigreindar og þróaðar eru í Bandaríkjunum. Það hafði ríkisstjórn Joes Biden, forvera Trumps, ekki samþykkt af ótta við að tæknibúnaðurinn myndi á endanum rata til Kína. WSJ segir að tengsl gervigreindarfyrirtækisins G42, sem Tahnoon á, við kínversk fyrirtæki eins og Huawei og önnur hafi vakið sérstakar áhyggjur. Eftir að Trump bar sigur úr býtum gegn Biden í kosningunum 2024 fór Tahnoon nokkrum sinnum á fund Trumps, Steve Witkoffs, sem er vinur Trumps og sérstakur erindreki hans, og annarra embættismanna. Heimildarmenn WSJ segja þá fundi hafa snúist um gervigreind og ýmislegt annað. Zach Witkoff, sonur Steves, er einn stofnenda og forstjóri rafmyntafyrirtækisins, sem heitir World Liberty Financial. Allir þrír synir Trumps eru einnig skráðir sem stofnendur WLF. Síðasta vor samþykkti ríkisstjórn Trumps að selja furstadæmunum hálfa milljón af háþróuðustu tölvuflögum Bandaríkjanna á ári hverju. Það dugar til að byggja eitt af stærstu gagnverum heims fyrir gervigreind. Tahnoon bin Zayed al-Nahyan er bróðir forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna og hefur verið kallaður „njósnasjeikinn“.Getty/Mustafa Kamaci, Anadolu Agency Enginn hagsmunaárekstur samkvæmt talsmönnum Um miðjan maí, nokkrum vikum áður en tölvuflögusamkomulagið var opinberað, tilkynnti Zach Witkoff að fjárfestingafyrirtækið MGX, sem Tahnoon leiðir, hafi samþykkt að nota rafmynt WLF til að fjárfesta fyrir tvo milljarða dala í rafmyntakauphöllinni Binance. Hann sagði þó aldrei frá því að WLF og MGX væru að stærstum hluta í eigu sömu aðilanna. Sjá einnig: Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Talsmenn Hvíta hússins og WLF þvertaka fyrir að Trump hafi með nokkrum hætti komið að rekstri rafmyntafélagsins sem synir hans eiga að hluta og reka eða látið það hafa áhrif á sig. Anna Kelly, ein talskona Hvíta hússins sagði enga hagsmunaárekstra geta átt sér stað vegna málsins, þar sem auður Donalds Trump væri í sérstökum sjóði sem börnin hans stýra. Washington Post hefur eftir Elizabeth Warren, öldungadeildarþingkonu Demókrataflokksins og æðsta Demókratanum í bankanefnd öldungadeildarinnar, að um hreina og klára spillingu sé að ræða. Hún kallar eftir því að embættismenn sem komið hafa að málefnum WLF og Steve Witkoff verði kallaðir fyrir nefndina og látnir svara fyrir málið. Warren segir að þingið þurfi að láta að sér kveða og stöðva „rafmyntarspillingu“ Trumps.
Bandaríkin Sameinuðu arabísku furstadæmin Rafmyntir og sýndareignir Gervigreind Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira