Erlent

Eitt barn og einn hundur - kjarnafjölskyldan í Kína

Hundum mun fækka í Peking með tilkomu nýrra reglna.
Hundum mun fækka í Peking með tilkomu nýrra reglna. MYND/Hörður Sveinsson

Ekki nóg með að Kínverjar megi einungis eiga eitt barn, nú mega íbúar Peking ekki eiga fleiri en einn hund. Borgaryfirvöld kenna vaxandi vinsældum gæludýrahalds um snaraukna tíðni hundaæðis og saka hundaeigendur um leti við að láta bólusetja dýrin. Þar að auki verður ólöglegt að viðra hundinn á ýmsum opinberum stöðum og verða eigendur sem brjóta reglurnar sóttir til saka.

Heilbrigðisyfirvöld segja að 318 manns hafi látist í Kína á einum mánuði úr hundaæði og víða um Kína hafa hundar í lausagöngu verið drepnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×