Erlent

Demókratar með meirihluta í öldungadeildinni

Demókratinn Jim Webb og kona hans Hong Le.
Demókratinn Jim Webb og kona hans Hong Le. MYND/AP

Demókratar hljóta mjög líklega meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins þar sem talningu er nú nánast lokið í Virginíufylki og demókratinn Webb heldur óbreyttu forskoti, þó naumt sé. Munurinn er langt innan við eitt prósent, sem eru skekkjumörkin sem leyfa þeim sem tapar að krefjast endurtalningar.

Rúm 7000 atkvæði eru hins vegar munur sem ólíklegt þykir að snúist við með endurtalningu.

CNN fréttastofan hefur þó eftir nánum samstarfsmanni repúblikans Allens að hann ætli ekki að draga baráttuna á langinn. Verði þetta niðurstaðan eru demókratar með meirihluta í báðum þingdeildum, ef með eru taldir 2 óháðir öldungadeildarþingmenn sem fylkja sér bak viði demókratana, og hafa þannig sterka mótstöðu við áætlanir Bush Bandaríkjaforseta.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×