Erlent

Tamíltígrar segja 45 látna og 125 slasaða á Sri Lanka

Stjórnarhermenn á Sri Lanka.
Stjórnarhermenn á Sri Lanka. MYND/AP

Tamíltígrarnir á Sri Lanka segja að 45 óbreyttir borgarar hafi látist og 125 slasast þegar stjórnarherinn skaut flugskeytum á flóttamannabúðir á austurhluta eyjunnar. Stjórnarherinn segir hins vegar að sprengjum hafi verið varpað á bækistöðvar skæruliða til að svara árásum sem þeir hafi gert á hermenn.

Liðsmenn norrænu friðargæslusveitarinnar eru á leiðinni á staðinn Kathiraveli sem er í Batticaloa-héraði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×