Andstæðingur Chavez forseti í Perú 5. júní 2006 16:14 MYND/AP
Svarinn andstæðingur Hugos Chavez sigraði í forsetakosningum í Perú í gær. Hann segist ætla að bæta fyrir fyrri forsetatíð sína, þegar verðbólga rauk upp og landið rambaði á barmi gjaldþrots. Þegar búið var að telja nærri níutíu prósent atkvæða hafði Garcia fengið um fimmtíu og fimm prósent og ljóst að sigurinn væri hans. Keppinauturinn og þjóðernissinninn Ollanta Humala hefur enda þegar viðurkennt ósigur í kosningunum. En það eru fleiri en Humala sem bölva úrslitum kosninganna. Sigur Garcia er mikill ósigur fyrir Húgó Chaves, forseta Venesúela, sem studdi Humala með ráðum og dáð, enda hafði Humala lofað að fara að fordæmi Chaves og Evo Moralez í Bólívíu og hækka skatta á erlend fyrirtæki sem nýta sér náttúruauðlindir landsins. Chaves blandaði sér með beinum hætti í kosningabaráttuna í Perú og gagnrýndi Garcia harkalega í fjölmiðlum. Það er því kannski ekki skrýtið að þegar sigurinn var í höfn í gær sagði Garcia að þjóðin hefði hafnað tilraunum Chavesar til að reyna að koma á herskárri stjórn um gervalla Suður Ameríku. Hann lofaði því jafnframt að bregðast ekki þjóð sinni og sagðist hafa lært af mistökunum. Hann var einmitt forseti landsins á árunum 1985-1990, þegar hann hröklaðist frá völdum. Þá var óðaverðbólga í landinu, víðtækur matarskortur og allt logaði í átökum.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira