Erlent

Olíuverð í sögulegu hámarki

MYND/AP

Heimsmarkaðsverð á olíu náði sögulegu hámarki í gær og var rúmir 70 dalir á tunnu. Ástæðan er sögð meðal annars kjarnorkudeila vesturveldanna við Írana.

Einnig er óttast að framboð á hráolíu frá Nígeríu eigi eftir að skerðast vegna átaka en þar eru framleiddar um hálf milljón tunna á degi hverjum. Sérfræðingar segja ólíklegt að verð lækki mikið í kjölfar þessarar hækkunar nema eftirspurn minnki töluvert sem virðist ólíklegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×