Erlent

Mótmæli í Beirút

Mikil spenna ríkir í Líbanon og stjórnarandstæðingar boða mótmæli næstu vikur og mánuði.
Mikil spenna ríkir í Líbanon og stjórnarandstæðingar boða mótmæli næstu vikur og mánuði. MYND/AP

Þúsundir stuðningsmanna Hizbollah-hreyfingarinnar í Líbanon og annarra fylkinga, sem aðhyllast náin tengsl við Sýrland, gengu fylktu liði um götur Beirút í gær og kröfðust afsagnar forsætisráðherra landsins, Fuads Saniora.

Sjálfur sat Saniora inni á skrifstofu sinni umkringdur hundruðum lögregluþjóna og hermanna.

Ráðherrar Hizbollah sögðu sig úr ríkisstjórn Líbanons fyrir nokkrum vikum þar sem ekki var orðið við kröfum þeirra um að fá þriðjung ráðherra í stjórninni, sem hefði þýtt að Hizbollah fengi neitunarvald í stjórn landsins.

Mótmælin í gær áttu að fara friðsamlega fram en af ótta við átök milli stjórnar og stjórnarandstöðu lokaði herinn öllum götum sem liggja að skrifstofu forsætisráðherrans.

Hizbollah hefur boðað fleiri mótmælaaðgerðir næstu vikur og mánuði til þess að hrekja stjórnina, sem nýtur stuðnings Bandaríkjanna, frá völdum.

Saniora sagðist hins vegar ætla að standa af sér storminn, en sagði í sjónvarpsávarpi á fimmtudagskvöld: „fullveldi Líbanons er ógnað og lýðræðið er í hættu.“

Saniora hvatti íbúa landsins til þess að sýna sér stuðning með því að flagga í gluggum og á svölum fána Líbanons, en reyndar hafði leiðtogi Hizbollah, Hassan Nazrallah, hvatt andstæðinga stjórnarinnar til þess að gera slíkt hið sama.

Bæði Nazrallah og Saniora höfðu hvatt sínar fylkingar til þess að forðast allt ofbeldi.

Stjórnin og stuðningmenn hennar telja ráðamenn í Sýrlandi standa á bak við aðgerðir Hizbollah og segja að Sýrlendingar vilji ná aftur því tangarhaldi sem þeir höfðu á stjórninni í Líbanon, sínu litla nágrannaríki.

Hizbollah og bandamenn þeirra segja aftur á móti að núverandi stjórn landsins sé undir hælnum á Bandaríkjamönnum og hafi þar með glatað öllum rétti til þess að stjórna landinu. Hizbollah krefst þess enn að fá nægan hlut í stjórninni til þess að hafa neitunarvald.

Bandaríkjastjórn virðist óttast að Líbanon taki sér stöðu við hlið Sýrlands og Írans sem andstæðingar bandarískra áhrifa í Mið-Austurlöndum.

Spenna hefur verið mikil í Líbanon undanfarið, bæði vegna hernaðar Ísraelsmanna gegn Hizbollah í sumar og vegna morða á áhrifamiklum stjórnmálamönnum í Líbanon sem allir hafa verið hliðhollir Sýrlendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×