Erlent

Átta ára barn myrt í skóla

Átta ára gamall drengur var myrtur í skóla sínum í bænum Hoogerheide í Hollandi í gær. Árásarmaðurinn var 22 ára gamall maður íklæddur síðum frakka og með hettu. Lögreglan handtók manninn skömmu síðar.

Hollenskir fjölmiðlar sögðu barnið vera son auðugs framkvæmdastjóra banka, en lögregla vildi ekki staðfesta annað en að maðurinn væri ættingi barnsins.

Atvikið varð skömmu fyrir hádegi og virðist sem fá börn hafi orðið vitni að morðinu. Skólanum var lokað eftir að lík barnsins fannst.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×