Erlent

Farþegar voru ekki varaðir við æfingunni

Æfing á viðbrögðum við flugráni á flugvellinum í Ulan Bator í Mongólíu snerist upp í skelfingu á miðvikudag þar sem gleymst hafði að vara bæði farþega og flugmenn vélarinnar við ósköpunum.

Eftir að vélin, sem var í innanlandsflugi, var lent réðust fjórir menn inn í flugstjórnarklefann og hrópuðu að vélinni væri rænt. Mennirnir bundu flugmennina og höfðu í hótunum við farþegana sem hírðust í vélinni í níutíu mínútur án þess að vita að ránið var aðeins æfing.

Mongólska leyniþjónustan lýsti ánægju sinni með árangur æfingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×