Erlent

Banaði barni í örbylgjuofni

Tuttugu og sex ára gömul bandarísk móðir hefur verið handtekin í Ohio í Bandaríkjunum, sökuð um að hafa banað mánaðargömlu barni sínu með því að stinga því í örbylgjuofn.

Atvikið er talið hafa átt sér stað fyrir ári, en telpan lést á sjúkrahúsi skömmu síðar með allt of háan líkamshita. Rannsókn málsins hefur reynst flókin, því áhrif örbylgjuofna á mannslíkama hafa lítt verið könnuð vísindalega, að sögn Kens Betz, talsmanns dánardómstjóra í Ohio.

Konan, sem á þrjú önnur börn, neitar sök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×