Erlent

Geislavirkt efni í Scaramella

Mario Scaramella
Mario Scaramella

Ítalinn Mario Scaramella, sem hitti Alexander Litvinenko á veitingahúsi í London hinn örlagaríka 1. nóvember síðastliðinn, var með í líkama sínum „umtalsvert magn“ af geislavirka efninu pólón 210, sem varð Litvinenko að bana í síðustu viku. Þetta kom í ljós þegar Scaramella var skoðaður í gær.

Scaramella segist hafa á fundi þeirra Litvinenkos hafa afhent honum tölvupósta þar sem fram komi nöfn hugsanlegra morðingja rússnesku blaðakonunnar Önnu Politkovskayu. Jafnframt hafi í póstunum verið nefnd fleiri væntanleg fórnarlömb þessara manna, þar á meðal nöfn Scaramellas og Litvinenkos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×