Erlent

Mannréttindasamtök ákveða

Madonna Ásamt börnum sínum og drengnum sem hún vill ættleiða.
Madonna Ásamt börnum sínum og drengnum sem hún vill ættleiða. MYND/AP

Mannréttindasamtök í Malaví og barnaverndarsamtök hafa fengið heimild til þess að taka þátt í ákvörðun um það hvort söngkonan Madonna fær að ættleiða eins árs gamlan dreng frá Malaví.

Andrew Nyirendaa, dómari í Malaví, kvað upp úrskurð um þetta á miðvikudag. Þessi sami dómari hafði veitt Madonnu og eiginmanni hennar bráðabirgðaheimild til þess í október að fá forræði yfir drengnum, en mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þá ákvörðun á þeim forsendum að Madonna hafi vegna frægðar sinnar fengið sérmeðferð í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×