Flóðin hvergi í rénun 17. apríl 2006 21:00
Vatnsborð Dónár hélt áfram að hækka í dag, íbúum á vatnasvæði hennar til enn frekara angurs og ama. Þá varð að rýma fjölda húsa í Georgíu vegna flóða.Það er af sem áður var þegar sungið var um Dóná svo bláa. Vegna votviðris og vorleysinga hamast hún kolmórauð áfram og hefur yfirborð hennar ekki verið hærra í rúma öld. Búist er við að rennslið í henni nái hámarki í kvöld eða á morgun en það er nú sextán þúsund rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar er meðalrennsi Þjórsár 360 rúmmetrar á sekúndu. Í Serbíu var vatnshæðin sums staðar farin að slaga hátt upp í tíu metra í dag og þar áttu íbúar flóðasvæðanna fullt í fangi með að verjast vatnselgnum. Þær varnir sem fyrir eru hafa veikst umtalsvert enda orðnar mettaðar af vatni. Í Rúmeníu hafa yfirvöld brugðið á það ráð að rjúfa garða og veita ánni á nálæga akra til að létta örlítið á henni. Fjöldi fólks sem orðið hefur að yfirgefa heimili sín hefst við í tjöldum og skýlum en ekki er vitað hvenær það getur snúið aftur til síns heima. En það flæðir víðar í Evrópu en á vatnasvæði Dónár. Úrhellisrigning í Kákasusríkinu Georgíu varð til þess að þorpið Tskorí, sem er skammt vestur af höfuðborginni Tíflis, fór hreinlega á kaf í morgun. Þorpsbúar áttu fótum fjör að launa en allir komust að lokum í öruggt skjól, sumir þó örlítið votir í fæturna.
Erlent Fréttir Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fleiri fréttir Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sjá meira