Erlent

Misstu af tveimur og hálfum milljarði

Þrjátíu íbúar í bænum Mouscron í Belgíu sitja nú eftir með sárt ennið eftir að hafa misst af stóra vinningnum í Evrópulottóinu skömmu fyrir helgi. Aðalvinningurinn nam jafnvirði rúmlega tveggja milljarða íslenskra króna þegar dregið var á föstudagskvöldið.

Fólkið hafði um nokkurt skeið valið lottótölurnar í sameiningu og sá sjoppueigandi úr þeirra hópi um að kaupa miðann hverju sinni. Hann ákvað hinsvegar upp á sitt einsdæmi í síðustu viku að láta lottóvélina velja tölur af handahófi í stað þess að nota þær tölur sem samið hafði verið um í það sinn. Þegar útvöldu tölurnar komu svo upp glöddust félagar í hópnum, en sú gleði breyttist í sorg þegar hið sanna kom í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×