Erlent

Tugþúsundir á flótta

Tugþúsundir Srí-Lankamanna eru á flótta eftir að stjórnarherinn hóf loftárásir á svæði Tamíltígranna svonefndu. Vopnahléið sem verið hefur í gildi á þessari stríðshrjáðu eyju virðist þar með vera farið út um þúfur.

Talið er að 65.000 manns hafi týnt lífi í átökum stjórnvalda á Srí Lanka og tamílskra aðskilnaðarsinna, Tamíltígranna svonefndu, síðastliðinn aldarfjórðung en síðan 2002 hefur vopnahlé verið í gildi. Að undanförnu hefur ólgan hins vegar farið mjög vaxandi á Srí Lanka og náði hún nýjum hæðum í gær þegar átta manns fórust og 27 særðust í sjálfsmorðsárás sem talið er nær öruggt að Tamíltígrarnir hafi staðið fyrir. Í kjölfarið hóf stjórnarherinn loftárásir og stórskotaliðárás af hafi á svæði tamíla á norð-austurhluta eyjunnar. Fimmtán eru sagðir hafa beðið bana í þeim. Íbúar svæðanna hafa leitað skjóls í frumskóginum og telur Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna að um fjörtíu þúsund manns séu nú á flótta. Tamíltígrarnir hafa þegar heitið hefndum og því er óttast að vítahringur ofbeldis sé í uppsiglingu á svæðinu. Boðað hefur verið til neyðarfundar í sáttanefnd stríðandi fylkinga á Srí Lanka og verður hann haldinn í Ósló á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×