Erlent

Fjölmenni við útför Sean Bell

Hundruð manna söfnuðust saman í Queens í gær til að votta saklausu fórnarlambi skotárásar lögreglu virðingu sína. Hinn látni, Sean Bell 23 ára, var borinn til grafar í gær.

Bell varð fyrir skotárás lögreglu þegar hann var á leið heim úr steggjapartíi ásamt tveimur vinum. Lögreglan taldi ranglega að ungu mennirnir væru vopnaðir. Fimmtíu lögreglumenn skutu á þremenningana og lést Bell samstundis. Hinir tveir liggja alvarlega særðir á sjúkrahúsi.

Útförin fór fram í sömu kirkju og á þeim degi sem Bell hefði átt að ganga í það heilaga ásamt unnustu sinni. Málið hefur vakið mikla óánægju almennings í Bandaríkjunum og lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×