Erlent

Norðmenn ætla að veiða 1.052 hrefnur

Norðmenn hafa gefið út sama hrefnuveiðikvóta og á liðinni vertíð.
Norðmenn hafa gefið út sama hrefnuveiðikvóta og á liðinni vertíð.

Norsk stjórnvöld tilkynntu í síðustu viku að hrefnuveiðikvóti næsta árs verði 1.052 dýr. Þetta er jafn stór heildarkvóti og á þessu ári en ekki náðist að veiða nema um helming þess kvóta á vertíðinni sem lauk fyrir skömmu.

Hrefnuveiðikvóti Norðmanna í ár náðist ekki vegna óhagstæðs veðurs að sögn hrefnuveiðimanna. Einnig hefur hátt verð á olíu sett strik í reikning þeirra þar sem margir forðuðust að sigla um langan veg til að veiða hrefnu. Kvótanum er skipt á milli strandveiða og úthafsveiða og á næsta ári verður leyfð veiði á 900 dýrum við ströndina í stað 600 á þessari vertíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×