Erlent

Sonarsonur Pinochet rekinn úr her Chile

Frá jarðarför Augusto Pinochets í Santiago, höfuðborg Chile, í fyrradag.
Frá jarðarför Augusto Pinochets í Santiago, höfuðborg Chile, í fyrradag. MYND/AP

Sonarsonur Augusto Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur verið rekin úr her landsins. Augusto Pinochet Molina olli miklu uppnámi í heimalandinu með orðum sem hann lét falla við jarðarför afa síns á þriðjudaginn.

Hann fordæmdi dómarana sem reyndu að rétta yfir honum meðan hann lifði og varði gjörðir afa síns. Michelle Bachelet, forseti, sagði ummælin alvarleg og að her Chile yrði að grípa til viðeigandi ráðstafana vegna þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×