Erlent

Bandarískum hermönnum fjölgað í Írak í óþökk hersins

MYND/AP

Bandaríska herráðið leggur til að stefnubreyting verði í Írak og bandarískum hersveitum frekar falið að þjálfa íraskar hersveitir en að taka þátt í bardögum við andspyrnumenn. Bandaríska dagblaðið Washington Post greinir frá þessu og hefur eftir heimildarmönnum innan Hvíta hússins. Þetta mun hafa verið rætt á fundum Bush Bandaríkjaforseta með fulltrúum bandaríska varnarmálaráðuneytisins í gær.

Yfirmenn Bandaríkjahers eru sagðir andvígir því að fjölga í herliðinu í Írak. Bandaríska blaðið Los Angeles Times greindi frá því í gær að Bandaríkjaforseti ætlaði þvert á móti að fjölga í herliðinu og áætlanir um það hefðu þegar verið gerðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×