Erlent

Tekur líka gildi hér

Charlie McCreevy, sem fer með málefni innri markaðar Evrópu í framkvæmdastjórn ESB, sagðist hafa eitt orð að segja er þjónustutilskipunin var loks komin alla leið í gegnum löggjafarferli ESB: „Halelúja“.
Charlie McCreevy, sem fer með málefni innri markaðar Evrópu í framkvæmdastjórn ESB, sagðist hafa eitt orð að segja er þjónustutilskipunin var loks komin alla leið í gegnum löggjafarferli ESB: „Halelúja“. MYND/AFP

Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur lagt lokablessun sína yfir svonefnda þjónustu­tilskipun sambandsins. Nú hafa aðildarríkin 25 þrjú ár til að innleiða tilskipunina í landslög. Það sama gildir um EFTA-ríkin í Evrópska efnahags­svæðinu, Ísland, Noreg og Liechtenstein.

Þjónustutilskipunin á að auðvelda þjónustuviðskipti yfir innri landamæri EES-svæðisins. Með gildistökunni er vonast til að samkeppni aukist og mörg ný störf skapist, en nærri sjötíu prósent allra launþega á EES-svæðinu starfa í þjónustugreinum.

Þessi áhrif verða þó minni en upprunalega var stefnt að, þar sem ýmsar þjónustugreinar verða undanskildar, svo sem heilbrigðisþjónusta, flest fjármálaþjónusta við einstaklinga, almenningssamgöngur, ljósvakamiðlun og öryggis­þjónusta, auk þess sem ráðstafanir verða gerðar til að vinna gegn meintum félagslegum undirboðum. Vegna pólitískrar andstöðu í ýmsum Vestur-Evrópulöndum var fallið frá því að þjónustuveitendur mættu starfa í öðru landi á EES-svæðinu samkvæmt reglum heimalandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×