Erlent

Gömul sprengja sprengd í hvelli

Sprengja frá tímum borgarastríðsins í Bandaríkjunum, sem háð var á árunum 1861 til 1865, fannst á þriðjudaginn við byggingaframkvæmdir í borginni Richmond í Virginíuríki í Bandaríkjunum.

Lögregla lokaði fjölfarinni götu í um það bil tuttugu mínútur meðan sprengjan var eyðilögð og fjarlægð. Ekki var hægt að sjá á sprengjunni hvort hún væri enn virk, þannig að ákveðið var að sprengja sprengjuna.

Hár hvellur heyrðist sem setti af stað viðvörunarbúnað í nærliggjandi bifreiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×