Mexíkóar minntust meyjarinnar frá Guadalupe 14. desember 2006 05:45 Eins og jafnan þegar hátíðisdagar eru haldnir fyllast börnin eftirvæntingu. Þessir krakkar sátu íklæddir þjóðlegum klæðnaði á tröppum dómkirkjunnar í Apatzingan á þriðjudaginn þegar Mexíkóar héldu upp á dag meyjarinnar frá Guadalupe, sem er ein stærsta hátíð ársins þar í landi. MYND/AP
Á þriðjudaginn var mikil hátíð í Mexíkó á degi Maríu meyjar frá Guadalupe. Milljónir manna streymdu út á götur Mexíkóborgar og annarra borga landsins til þess að halda daginn hátíðlegan. Mærin frá Guadalupe er verndardýrlingur allrar rómönsku Ameríku, en langsamlega vinsælust þó í Mexíkó þar sem hún á sterkari ítök í landsmönnum en nokkurt annað trúartákn. Mærin frá Guadalupe er dökk á hörund og hún birtist fyrst indíána að nafni Juan Diego á Tepeyac-hæð skammt frá Mexíkóborg árið 1531, en þá höfðu Spánverjar nýverið kynnt fyrir innfæddum helstu atriði kaþólskrar trúar. Sagan segir að María mey hafi birst Juan Diego og beðið hann um að reisa kirkju á hæðinni. Þegar biskupinn á staðnum reyndist tregur til að samþykkja slíka framkvæmd birtist mynd af meyjunni á klæði Diegos, og það dugði til þess að sannfæra biskup. Þetta klæði með myndinni er enn geymt í kirkju meyjarinnar helgu í Mexíkóborg. Á þriðjudaginn er talið að rúmlega fimm milljónir manna hafi komið akandi, gangandi og jafnvel skríðandi til kirkjunnar, sem er einn mesti helgidómur landsins. Margir komu frá fátækum þorpum víða um land og höfðu jafnvel gengið dögum saman til þess að komast á leiðarenda. Um 2.600 pílagrímar leituðu sér lækninga í kirkjunni, flestir við minni háttar krankleika af ýmsu tagi, en ein kona fæddi barn á tröppum kirkjunnar, samkvæmt frásögn mexíkósku fréttastofunnar Notimex. Rithöfundurinn Octavio Paz sagði einhverju sinni að eftir tveggja alda tilraunir hafi Mexíkóar komist að þeirri niðurstöðu að trúa á aðeins tvennt í heimi, nefnilega meyna frá Guadalupe og ríkishappdrættið. Þessi mynd var tekin við kirkju meyjarinnar frá Guadalupe í Puerto Vallarta í Jalisco-héraði þar sem þúsundir manna héldu daginn hátíðlegan.MYND/AP . Burðast með líkneski krists á krossinum Einn pílagrímanna í Mexíkóborg hafði meðferðis þessa eftirmynd frelsarans.MYND/AFP .
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Sjá meira