Erlent

Einkaspæjarar í jólaboðum

 Danskir einkaspæjarar hafa óskaplega mikið að gera í desembermánuði, því fjölmargar afbrýðisamar eiginkonur ráða þá til að mæta í jólaboð og hafa auga með eiginmönnunum, segir í frétt ríkisútvarps Danmerkur.

„Við eru fullbókuð allar helgar í desember,“ sagði einkaspæjarinn Sture Baggenæs hjá jósku leynilögreglu- og vaktþjónustunni í Álaborg.

Mæta leynilögregluþjónarnir í stærri jólaboð, en fylgjast með þeim smærri úr bíl sem lagt er nærri þeim stöðum þar sem boðin eru haldin. Í báðum tilfellum elta þeir gjarnan viðfangsefnið eftir að boðinu líkur.

Upphafskostnaðurinn við að ráða danskan einkaspæjara til vinnu eru um 3.300 danskar krónur, að andvirði um 40.000 íslenskar krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×