Erlent

Bílsprengjur bana minnst 71

Sprengjurnar tættu bílana í sundur sem þeim hafði verið komið fyrir í.
Sprengjurnar tættu bílana í sundur sem þeim hafði verið komið fyrir í. MYND/AP

Minnst 71 Íraki lét lífið í sprengjutilræði í Bagdad á þriðjudag, sem beint var gegn daglaunamönnum sem söfnuðust saman í leit að vinnu snemma morguns á torgi í hverfi sjía-múslima. 151 maður særðist.

Tvær öflugar bílsprengjur voru sprengdar í tilræðinu. Annarri hafði verið komið fyrir í yfirgefnum bíl en hina hafði sjálfmorðssprengjumaður um borð í litlum sendibíl, sem hann hleypti hinum vinnufúsu mönnum upp í undir því yfirskini að vilja ráða þá. Þá sprengdi hann sprengjuna með fyrrgreindum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×