Erlent

Engar kröfur um sérþekkingu

Robert Mueller yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar FBI segist hafa gert Gary Bald að yfirmanni hryðjuverkarannsóknardeildar vegna reynslu hans af leyniskyttumálinu í Washington og nágrenni árið 2002.
Robert Mueller yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar FBI segist hafa gert Gary Bald að yfirmanni hryðjuverkarannsóknardeildar vegna reynslu hans af leyniskyttumálinu í Washington og nágrenni árið 2002. MYND/AP

Bandaríkin Yfirmenn bandarísku alríkislögreglunnar FBI viðurkenna að þeir hafi ekki gert kröfur um sérstaka þekkingu á starfsemi hryðjuverkasamtaka né heldur á málefnum Mið-Austurlanda þegar fólk var ráðið til starfa hjá deild, sem hafði það verkefni að koma í veg fyrir hryðjuverk eftir árásirnar á New York og Washington í september árið 2001.

Þetta kemur fram í skjölum úr dómsmáli sem Bassem Youssef, einn helsti sérfræðingur FBI í málefnum Mið-Austurlanda, hefur höfðað á hendur alríkislögreglunni. Hann sakar FBI um að hafa árum saman gengið fram hjá sér í embættisveitingum.

Málsskjölin voru gerð opinber í gær á vefsíðu óháðrar eftirlitsstofnunar með starfsemi FBI, en slóðin á vefsíðunni er www.whistleblowers.org.

Allir helstu yfirmenn FBI voru kvaddir til þess að bera vitni við réttarhöldin, þar sem þeir færa rök fyrir því að Youssef hafi ekki verið ráðinn í yfirmannsstöður hjá hryðjuverkadeildinni vegna þess að ekki hafi verið gerðar kröfur um sérþekkingu yfirmanna á málefnum Mið-Austurlanda.

„Ástæðan er sú að það þarf að hafa leiðtogahæfileika,“ sagði Gary Bald, sem var gerður yfirmaður hryðjuverkadeildarinnar árið 2002 án þess að hafa sérfræðiþekkingu á hryðjuverkamálum. „Sérfræðiþekking er ekki nauðsynleg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×