Erlent

Þörf á frekari kynfræðslu í Evrópu

Íslenskir unglingar byrja að stunda kynlíf yngstir allra Evrópubúa.
Íslenskir unglingar byrja að stunda kynlíf yngstir allra Evrópubúa.

Sérfræðingar á heilbrigðissviði hvöttu í gær Evrópulönd til að auka kynfræðslu ungs fólks og sögðu gríðarlegan mun vera á þessu námsefni innan álfunnar. Kynfræðsla er skylduefni í skólum flestra landa, en ekki í Búlgaríu, Bretlandi, Póllandi og á Kýpur og Ítalíu.

„Við hvetjum löndin öll til að að sýna meiri áhuga á kynfræðslu,“ sagði Gunta Lazdane, talsmaður Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, en stofnunin stóð, ásamt háskólanum í Lund í Svíþjóð og fleirum, að 94 síðna skýrslu um kynfræðslu í 26 Evrópulöndum. Þar er hvatt til þess að í kynfræðslu í skólum sé sinnt frekar upplýsingum sem geta hjálpað ungmennum að taka ákvarðanir sem varða kynlíf, en minna um kynsjúkdóma.

Á meðan kynfræðslu er vel tekið á Norðurlöndunum og í Hollandi, er almenningur mikið á móti henni í löndum svo sem Tékklandi, Þýskalandi, Írlandi og Póllandi.

„Áhrif trúar eru mun meiri í sumum löndum,“ sagði Vicky Clayes, sem vann að skýrslunni.

Íslensk ungmenni fara að stunda kynlíf yngst allra Evrópubúa, eða 15,7 ára. Slóvakar, aftur á móti, eru elstir Evrópubúa þegar þeir byrja að stunda kynlíf, eða 18 ára.

„Það er ekki aldurinn sem skiptir máli, heldur hvenær unga fólkið er tilbúið til þess,“ bætti Ladzane við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×