Erlent

Dæmdur sekur um þjóðarmorð

Allir voru þeir dæmdir sekir um grimmdarverk.
Allir voru þeir dæmdir sekir um grimmdarverk. MYND/AP

Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu, var á þriðjudag, ásamt félögum sínum, dæmdur sekur um þjóðarmorð og fleiri glæpi í réttarhöldum, sem haldin voru í Eþíópíu að honum fjarstöddum.

Mengistu býr í útlegð í Simbabve en Robert Mugabe forseti hefur lofað honum því að framselja hann ekki til Eþópíu. Refsingin verður ákveðin 28. þessa mánaðar.

Mengistu steypti Haile Selassie keisara og ríkti með harðri hendi á árunum 1974 til 1991, þegar uppreisnarmenn steyptu honum af stóli.

Réttarhöldin snerust um morð á tvö þúsund manns í ógnar­herferð á árunum 1977-78.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×