Erlent

Íranar og ESB heita aðstoð

Ismail Haniyeh
Ismail Haniyeh

Íransstjórn hefur heitið 250 milljónum Bandaríkjadollara, andvirði 18 milljarða króna, í fjárhagsaðstoð við hina umsetnu stjórn Hamas-samtakanna á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna. Palestínski forsætisráðherrann Ismail Haniyeh greindi frá þessu í byrjun vikunnar er hann lauk fjögurra daga heimsókn til Teheran.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að sambandið framlengi um þrjá mánuði neyðar-fjárhagsaðstoð sína við Palestínumenn, sem sniðgengur Hamas-stjórnina. Skrúfað hefur verið fyrir nær alla erlenda fjárhagsaðstoð við palestínsku heimastjórnina þar sem Hamas harðneitar að viðurkenna Ísrael og áður gerða samninga við Ísraela.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×