Erlent

45 konur dóu í spítalabruna

45 konur létu lífið í spítalabruna í Moskvu í nótt. Þetta er mannskæðasti bruni í Moskvu í þrjú ár. Yfirvarðstjóri slökkviliðsins í borginni telur að kveikt hafi verið í spítalanum, en verið er að kanna orsakir brunans. Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. Fjörtíu og tvær konur voru látnar þegar slökkvilið kom á staðinn en hundrað og sextíu voru fluttir á brott úr fimm hæða byggingunni. Fréttastofur segja tvo starfsmenn spítalans látna, en tíu manns voru lagðir inn á sjúkrahús með reykeitrun. Yuri Nenashev yfirvarðstjóri slökkviliðssins í Moskvuborg segir 90% öruggt að kveikt hafi verið í spítalanum. Verið er að rannsaka orsakir brunans, en slökkviliðið ráðlagði að loka deildinni eftir skoðun í mars sem leiddi í ljós að brunavörnum var verulega ábótavant. Að meðaltali látast átján þúsund manns á ári í brunum í Rússlandi, en sérfræðingar segja ástandið hafa versnað til muna eftir að sovétlíðveldið leið undir lok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×