Erlent

Panamaskurðurinn verður víkkaður

79% kjósenda merktu við "já" á kjörseðlinum.
79% kjósenda merktu við "já" á kjörseðlinum. MYND/AP

Panama-búar kusu í gær um mestu framkvæmdir í 92ja ára sögu Panama-skurðarins. 79% kjósenda samþykktu að víkka skurðinn þannig að heimsins stærstu skip geti komist um skipaskurðinn sem tengir Atlantshafið og Kyrrahafið.

Framkvæmdin mun kosta í kringum 360 milljarða íslenskra króna og verður fjármögnuð með hækkun siglingartolla, auk þess sem tekjur munu aukast þegar stærri skip geta komist í gegn. Einnig er í bígerð að grafa einn skurð til viðbótar við hinar siglingaleiðirnar tvær, og sá á að komast í gagnið árið 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×