Búskmennirnir í Botsvana fá að snúa aftur heim 15. desember 2006 06:00 Búskmenn í Botsvana segjast hafa verið hraktir frá heimkynnum sínum í Kalahari-eyðimörkinni til þess að stjórnvöld geti haft þar óheftan aðgang fyrir demantavinnslu og annan námugröft. MYND/AP
Á miðvikudaginn felldi Hæstiréttur í Botsvana þann úrskurð að búskmenn hafi fullan rétt til þess að snúa aftur til heimkynna sinna í Kalahari-eyðimörkinni. Þessi úrskurður skiptir sköpum fyrir Búskmenn, sem segja að stjórn landsins hafi hrakið þá frá hefðbundnum veiðilendum sínum árið 2002 til þess að geta stundað þar demantavinnslu og annan námugröft. Stjórnin neitar því, segir að Búskmenn hafi sjálfir samþykkt að flytja burt og þeir hafi fengið bætur, auk þess sem stjórnin hafi fyrir átt allan rétt til auðlinda í jörðu. Þriggja manna dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að Búskmenn hafi alla tíð haft fullan lagalegan rétt til þess að dvelja á veiðilendunum, þeir hafi verið ólöglega sviptir eignum sínum, og það brjóti í bága við stjórnarskrá landsins að neita þeim um veiðileyfi þótt þarna sé nú friðland veiðidýra. Á hinn bóginn taldi dómstóllinn að ríkinu bæri engin skylda til að útvega þeim, sem kjósa að snúa aftur, nokkra grunnþjónustu á borð við neysluvatn. Búskmenn hafa frá alda öðli átt heimkynni í Kalahari-eyðimörkinni, sem nú nær yfir landamæri þriggja ríkja, Botsvana, Namibíu og Suður-Afríku. Flestir þeirra búa í Botsvana, og nefnist ættbálkur þeirra þar Basarva, en í Namibíu býr um þriðjungur búskmanna og kallast þeir San. Búskmenn hafa hafst við á þessum slóðum í 20 þúsund ár, en hafa lengi átt í vök að verjast, fyrst fyrir um 1.500 árum þegar Bantúmenn streymdu til suðurs frá Mið-Afríku og síðan kom næsta holskeflan fyrir um 350 árum þegar Evrópubúar komu og sölsuðu undir sig allt það land sem þeir gátu. Nú eru Búskmenn um hundrað þúsund talsins og búa flestir við verulega fátækt. Búskmenn hafa hafst við í Kalahari-eyðimörkinni í 20 þúsund ár. . Búskmennirnir bíða þess margir í ofvæni að mega flytja aftur til fyrri heimkynna sinna í Kalahari-eyðimörkinni. . Mikill fögnuður braust út þegar dómur hafði fallið.MYND/AP . Brúnin var þung á fólkinu sem beið úrskurðar hæstaréttar í réttarsalnum í höfuðborginni Lobatse á miðvikudaginn. .
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Sjá meira