Erlent

Áfangi að inngöngu í NATO

Tékkneskir hermenn í friðargæsluliði NATO á æfingu í Kosovo í gær. NATO ætlar sér lykilhlutverk við að tryggja frið á Balkanskaga.
Tékkneskir hermenn í friðargæsluliði NATO á æfingu í Kosovo í gær. NATO ætlar sér lykilhlutverk við að tryggja frið á Balkanskaga. MYND/AP

Atlantshafsbandalagið tók í gær Serbíu, Svartfjallaland og Bosníu-Herzegovínu inn í aðildarundirbúningsáætlun sína. Ákvörðunin er liður í víðtækari áætlun um að draga með tíð og tíma alla fyrrverandi fjendur úr upplausnarstríðum gömlu Júgóslavíu inn í raðir bandalagsins og treysta stoðir varanlegs friðar á Balkanskaga.

Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, sagði í ræðu í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í tilefni af því að ellefu ár eru liðin frá því Dayton-samkomulagið var gert sem batt enda á stríðið í Bosníu, að Bosnía væri nú „loks komin á beinu brautina að þátttöku í Evró-Atlantshafs-samstarfinu“.

Leiðtogar NATO ákváðu á fundi sínum í Ríga í lok nóvember að bjóða Bosníu-Herzegovínu, Serbíu og Svartfjallalandi til liðs við Samstarf í þágu friðar, og í gær gengu leiðtogar ríkisstjórna landanna þriggja hver fyrir sig á fund de Hoop Scheffers í Brussel til að undirrita samninga þar að lútandi. Þess er vænst að þrjú önnur þátttökuríki í Samstarfi í þágu friðar fái inngöngu í NATO á árinu 2008, en það eru Albanía, Króatía og Makedonía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×