Erlent

Ungbörn hugsanlega myrt

Blaðamenn BBC segjast hafa heimildir fyrir því að heilbrigð úkraínsk ungbörn hafi verið myrt á sjúkrahúsi í Úkraínu, svo að hægt væri að taka stofnfrumur úr líkamsleifum þeirra, að því er kemur fram á fréttavef BBC.

Fréttastofan og Evrópuráðið hafa undir höndum kvikmyndir af krufningum ungbarna sem hlutuð hafa verið í sundur. Eins hafa fréttamenn tekið viðtöl við mæður sem segjast hafa eignast heilbrigð börn sem hurfu af fæðingardeildinni.

Talsmenn sjúkrahússins Fæðingardeild númer sex þvertaka fyrir að slíkt athæfi hafi átt sér stað.

Ein mestu stofnfrumuviðskipti í heiminum fara fram í Úkraínu, en talið er að slíkar frumur geti læknað ýmsa sjúkdóma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×