Erlent

Írönsk stjórnvöld fordæmd á Vesturlöndum

Æðstiklerkur Írans ásamt tveimur ráðstefnugestum Til ráðstefnunnar í Teheran mætti hópur gyðinga, sem er á móti því að þjáningar gyðinga í helförinni séu notaðar til þess að réttlæta tilveru og framferði Ísraelsríkis.
Æðstiklerkur Írans ásamt tveimur ráðstefnugestum Til ráðstefnunnar í Teheran mætti hópur gyðinga, sem er á móti því að þjáningar gyðinga í helförinni séu notaðar til þess að réttlæta tilveru og framferði Ísraelsríkis. MYND/AP

„Mér finnst þetta hreinlega ótrúlegt,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, um tveggja daga ráðstefnu í Íran, sem lauk í gær, þar sem viðraðar voru efasemdir um að helför gyðinga á tímum nasista hafi nokkurn tímann átt sér stað.

„Ég meina, að bjóða fyrrverandi leiðtoga Ku Klux Klan á ráðstefnu í Teheran þar sem efast er um að milljónir manna hafi dáið í helförinni,“ hélt Blair áfram. „Þurfa menn frekari sannanir fyrir því að þessi ríkisstjórn sé öfgakennd?“

Ummæli Blair eru nokkuð dæmigerð fyrir viðbrögð á Vesturlöndum við þessu uppátæki stjórnvalda í Íran. Ekki síst hafa viðbrögðin verið hörð í Þýskalandi, Austurríki og Frakklandi, en í þessum þremur ríkjum er hreinlega bannað með lögum að draga opinberlega í efa að helförin hafi átt sér stað.

Bandaríkjastjórn fordæmdi einnig stjórnvöld í Íran og sagði ráðstefnuna vera „ögrun við hinn siðmenntaða heim.“

Í ræðu sinni á ráðstefnunni spáði Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, því að Ísraelsríki yrði „bráðlega þurrkað út með sama hætti og Sovétríkin, og þá öðlast mannkynið frelsi.“ Þessum ummælum var ákaft fagnað með lófataki í ráðstefnusalnum, en ráðstefnuna sóttu nærri sjötíu manns frá þrjátíu löndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×