Erlent

Mexíkóar minntust meyjarinnar frá Guadalupe

Eins og jafnan þegar hátíðisdagar eru haldnir fyllast börnin eftirvæntingu. Þessir krakkar sátu íklæddir þjóðlegum klæðnaði á tröppum dómkirkjunnar í Apatzingan á þriðjudaginn þegar Mexíkóar héldu upp á dag meyjarinnar frá Guadalupe, sem er ein stærsta hátíð ársins þar í landi.
Eins og jafnan þegar hátíðisdagar eru haldnir fyllast börnin eftirvæntingu. Þessir krakkar sátu íklæddir þjóðlegum klæðnaði á tröppum dómkirkjunnar í Apatzingan á þriðjudaginn þegar Mexíkóar héldu upp á dag meyjarinnar frá Guadalupe, sem er ein stærsta hátíð ársins þar í landi. MYND/AP

Á þriðjudaginn var mikil hátíð í Mexíkó á degi Maríu meyjar frá Guadalupe. Milljónir manna streymdu út á götur Mexíkóborgar og annarra borga landsins til þess að halda daginn hátíðlegan.

Mærin frá Guadalupe er verndardýrlingur allrar rómönsku Ameríku, en langsamlega vinsælust þó í Mexíkó þar sem hún á sterkari ítök í landsmönnum en nokkurt annað trúartákn.

Mærin frá Guadalupe er dökk á hörund og hún birtist fyrst indíána að nafni Juan Diego á Tepeyac-hæð skammt frá Mexíkóborg árið 1531, en þá höfðu Spánverjar nýverið kynnt fyrir innfæddum helstu atriði kaþólskrar trúar.

Sagan segir að María mey hafi birst Juan Diego og beðið hann um að reisa kirkju á hæðinni. Þegar biskupinn á staðnum reyndist tregur til að samþykkja slíka framkvæmd birtist mynd af meyjunni á klæði Diegos, og það dugði til þess að sannfæra biskup.

Þetta klæði með myndinni er enn geymt í kirkju meyjarinnar helgu í Mexíkóborg.

Á þriðjudaginn er talið að rúmlega fimm milljónir manna hafi komið akandi, gangandi og jafnvel skríðandi til kirkjunnar, sem er einn mesti helgidómur landsins. Margir komu frá fátækum þorpum víða um land og höfðu jafnvel gengið dögum saman til þess að komast á leiðarenda.

Um 2.600 pílagrímar leituðu sér lækninga í kirkjunni, flestir við minni háttar krankleika af ýmsu tagi, en ein kona fæddi barn á tröppum kirkjunnar, samkvæmt frásögn mexíkósku fréttastofunnar Notimex.

Rithöfundurinn Octavio Paz sagði einhverju sinni að eftir tveggja alda tilraunir hafi Mexíkóar komist að þeirri niðurstöðu að trúa á aðeins tvennt í heimi, nefnilega meyna frá Guadalupe og ríkishappdrættið.

Þessi mynd var tekin við kirkju meyjarinnar frá Guadalupe í Puerto Vallarta í Jalisco-héraði þar sem þúsundir manna héldu daginn hátíðlegan.MYND/AP


.
Burðast með líkneski krists á krossinum Einn pílagrímanna í Mexíkóborg hafði meðferðis þessa eftirmynd frelsarans.MYND/AFP


.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×