Ísinn bráðnar örar en áður 13. desember 2006 03:00
Allur ís á norðurpólnum gæti horfið mjög hratt næstu áratugina, einkum á sumrin, að mati hóps bandarískra vísindamanna, sem kynntu niðurstöður rannsókna sinna á fundi Samtaka bandarískra jarðeðlisfræðinga nýverið. Íshellan vex ekki jafn hratt og áður á haustin og í síðasta mánuði var hafísinn tveimur milljón ferkílómetrum minni en hann hefur verið að meðaltali í nóvember þegar mælingar eru skoðaðar aftur í tímann. „Þetta svæði er jafnstórt Alaska,“ sagði Mark Serreze, sérfræðingur í hafís við Colorado-háskólann, í samtali við fréttamann breska ríkisútvarpsins, BBC. „Við náum okkur ekki vel aftur á strik á haustin lengur. Ísinn gæti verið farinn að fylgja skilyrðum, verður kannski farinn að sýna mjög öra minnkun í fyrirsjáanlegri framtíð.“ Hafísinn varð minnstur í ár þann 14. september og hefur hann eingöngu þrisvar áður mælst minni í 29 ára sögu mælinga íssins með aðstoð gervihnatta. Minnstur varð hann í fyrra. Áhyggjur Serreze endurspegluðust í nýju tölvulíkani sem vísindamenn Loftslagsrannsóknarstöðvar Bandaríkjanna og McGill og Washington háskólanna kynntu á fundinum, sem sýnir að allur hafís á norðurpólnum gæti bráðnað sumarið árið 2040. Vísindamennirnir sýndu fram á að því meira sem bráðnar af ísnum, því örar bráðnar hann. „Þegar ísinn hopar, flytur hafið meiri hita til norðurheimskautsins og íslaust vatnið drekkur í sig meira sólarljós, sem aftur eykur hraða hlýnunar og leiðir til frekara ístaps,“ sagði Markia Holland, íssérfræðingur. Að lokum kemst þetta ferli á stig þaðan sem ekki verður aftur snúið, og þarf ekki meiri háttar atburð til heldur eingöngu eitt ár sem er hlýrra en önnur, að sögn Hollands. Eftir það, verður bráðnunin afar ör. Þessar breytingar munu hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir allt lífríki þessa svæðis, ekki síst fyrir ísbirni sem veiða sér til matar á og í sjónum umhverfis. Jafnframt myndu þær hafa gríðarleg áhrif á mennska íbúa svæðisins, sem myndu þar með tapa aldagömlum hefðum. Aftur á móti gæti ístapið skapað ný atvinnutækifæri fyrir þetta fólk, því hægt verður að sigla yfir norðurpólinn. Auk þess má gera ráð fyrir frekari loftlagsbreytingum um heim allan, þegar jörðin fer að drekka í sig meiri hita frá sólinni.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Sjá meira