Erlent

Ræða aðildarundirbúning

Alfred Moisiu Albaníuforseti, fyrir miðju, ásamt ráðunautum á ráðherrafundinum í Tirana í gær.
Alfred Moisiu Albaníuforseti, fyrir miðju, ásamt ráðunautum á ráðherrafundinum í Tirana í gær. MYND/AP

Varnarmálaráðherrar sex landa á Balkanskaga settust á rökstóla í albönsku höfuðborginni Tirana í gær til að ræða tilraunir landa þeirra til að fá aðild að Atlantshafsbandalaginu.

Efst á dagskrá var að ræða hvernig efla mætti hernaðarlega, pólitíska og efnahagslega samvinnu landanna - Albaníu, Króatíu, Makedoníu, Serbíu, Svartfjallalands og Bosníu-Herzegovínu - auk þess að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi, til að nálgast það að uppfylla aðildarskilyrðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×