Erlent

Vilja frysta viðræður

Ráðherrar rökræða Erkki Tuomioja, utanríkisráðherra Finnlands, sem gegnir ESB-formennskunni þetta misserið, heilsar grískri starfssystur sinni, Doru Bakoyannis, í Brussel í gær.
Ráðherrar rökræða Erkki Tuomioja, utanríkisráðherra Finnlands, sem gegnir ESB-formennskunni þetta misserið, heilsar grískri starfssystur sinni, Doru Bakoyannis, í Brussel í gær. MYND/AP

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins sátu í gær á rökstólum í Brussel um það hvernig bregðast skuli við því að Tyrkir hafa ekki staðið við skuldbindingar um að opna hafnir sínar og flugvelli fyrir umferð og viðskiptum frá gríska hluta Kýpur. Talsmenn sambandsins höfðu hótað Tyrklandsstjórn því að hlé yrði gert um óákveðinn tíma á aðildarviðræðum Tyrkja, yrði hún ekki við kröfum ESB að þessu lútandi.

Utanríkisráðherrarnir skiptust greinilega mjög í tvö horn hvað varðar afstöðuna til slíkra refsi­aðgerða gegn Tyrkjum vegna málsins, og því benti flest til að ákvörðun um hvort frysta beri aðildarviðræðurnar yrði ekki tekin fyrr en á sjálfum leiðtogafundi ESB, sem hefst í Brussel á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×