Erlent

Fleiri vændiskonur horfnar í Ipswich

Gemma Adams, 25 ára, t.v., og Tania Nicol, 19 ára, fundust myrtar skammt frá Ipswich í Englandi.
Gemma Adams, 25 ára, t.v., og Tania Nicol, 19 ára, fundust myrtar skammt frá Ipswich í Englandi. MYND/Nordicphotos/afp

Breska lögreglan óttast að rað-morðingi gangi laus í Suður-Englandi. Lík þriggja kvenna, sem allar störfuðu sem vændiskonur, hafa fundist á síðustu dögum og leikur grunur á að tvær konur til viðbótar séu horfnar.

Lögreglan varaði í gær vændiskonur við því að vinna á götum Ipswich-borgar, en konurnar hafa allar horfið þaðan. Lík þriggja þeirra fundust nakin nærri borginni á síðustu níu dögum, og staðfesti lögregla í gær að tvö þeirra hefðu fundist í ám.

Nú leitar lögreglan dyrum og dyngjum að hinni 24 ára gömlu Paulu Clennel, sem síðast sást til á laugardag, og annarri konu, Annette Nicholls, sem síðast sást til í byrjun þessa mánaðar.

Jacqui Cheer aðstoðarlögreglustjóri varaði allar konur í Ipswich við að vera einar á ferli og bað vændiskonur sérstaklega um að halda sig fjarri götunum. „Ef þið eruð einar úti að nóttu til setjið þið ykkur í hættu,“ sagði hún.

Lögregluforinginn Stewart Gull áréttaði að þótt grunur leiki á að hér sé raðmorðingi á ferð, hafi lögreglan síður en svo útilokað að um fleiri glæpamenn sé að ræða.

Tania Nicol, 19 ára, hvarf 30. október og vinstúlka hennar, hin 25 ára gamla Gemma Adams, hvarf tveimur vikum síðar. Þær stöllur unnu gjarnan saman. Kennsl hafa ekki verið borin á þriðju konuna, en hún var rúmlega tvítug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×