Fær ekki viðhafnarútför 12. desember 2006 04:30 Chile-menn brugðust á ýmsan hátt við fregnum af dauða einræðis-herrans fyrrverandi, Augusto Pinochet. Sumir dönsuðu á götum úti en aðrir grétu beisklega. MYND/AP
Einræðisherrann fyrrverandi, Augusto Pinochet, verður borinn til grafar í dag. Þjóðarsorg var ekki lýst yfir í landinu og fær Pinochet enga viðhafnarútför, þótt hefð sé fyrir því að fyrrum forsetar Chile fái slíka útför. Í stað þess verður hann jarðsettur að hermannasið. Tilfinningar Chile-manna voru vægast sagt í miklu uppnámi þegar fregnir af láti Pinochets bárust á sunnudag. Sumir opnuðu kampavínsflöskur og dönsuðu á götum úti, aðrir grétu beisklega og enn aðrir lentu í útistöðum við lögregluna, en 99 manns voru handteknir aðfaranótt mánudagsins í átökum í Santíagó þar sem 43 lögreglumenn slösuðust. Fórnarlömb Pinochets og ættingjar þeirra urðu að gefa upp vonina um að einræðisherrann fyrrverandi yrði nokkurn tímann dæmdur fyrir glæpi unna á valdatíma hans. Pinochet leiddi valdarán hersins í Chile árið 1973, þegar sósíalíska forsetanum Salvador Allende var steypt af stóli. Sáu margir Chile-menn Pinochet sem bjargvætt þeirra frá kommúnisma, en hann stýrði landinu með járnaga fram til ársins 1990. Chileska ríkisstjórnin hefur sagt að á meðan á valdatíma hans stóð hafi yfir þrjú þúsund manns verið myrtir, fleiri en eitt þúsund manns horfið sporlaust og talið er að nær þrjátíu þúsund manns hafi sætt pyntingum. Þúsundir Chile-manna voru jafnframt neyddir í útlegð. Faðir núverandi forseta Chile, Michelle Bachelet, var mikill andstæðingur Pinochet og lést hann eftir að hafa sætt pyntingum undir stjórn einræðisherrans. Pinochet var aldrei dæmdur fyrir mannréttindabrot, því bágt andlegt og líkamlegt heilsufar hans seinustu árin hefur ætíð komið honum undan réttarhöldum. Hann var hnepptur í stofufangelsi nýverið, ákærður fyrir mannréttindabrot og skattsvik. Skömmu áður hafði hann sent frá sér yfirlýsingu, þar sem hann sagðist taka „pólitíska ábyrgð á öllu sem gerðist“ í stjórnartíð hans, en minntist þó ekki á mannréttindabrot. Þótt Pinochet sé minnst sem einvalds sem sinnti lítt um rétt andstæðinga sinna, lagði hann samt sem áður grunninn að stöðugum efnahag landsins sem áður var í molum. Skrifstofa Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagði að Thatcher væri „ákaflega sorgmædd“ yfir fráfalli Pinochet, en talsmaður Hvíta hússins sagði Bandaríkjastjórn vera hugsað til fórnarlamba stjórnartíðar hans. Augusto Pinochet .
Mest lesið Gabríel og Anton Boama réðust á tvær konur og Anton stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Erlent Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Erlent Fleiri fréttir Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Sjá meira