Erlent

Kúgun kvenna skaðar heilsu

Börn væru betur haldin ef mæður réðu meiru um útgjöld fjölskyldunnar.
Börn væru betur haldin ef mæður réðu meiru um útgjöld fjölskyldunnar. MYND/nordicphotos/afp

Konur eru oft útilokaðar frá ákvarðanatökum fjölskyldunnar um matar- og lyfjakaup sem veldur því að börn þeirra eru vannærð og þeirra eigin heilsa í hættu. Þetta segir í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um rannsókn sem náði til þrjátíu landa í öllum heimsálfum.

Karlmenn í þróunarlöndunum, sem stýra oft fjármálum fjölskyldunnar, setja aðra hluti í forgang en mat. Í Kamerún verja konur 74 prósentum tekna sinna í mat fyrir fjölskylduna en karlar aðeins 22 prósentum af sínum tekjum. Segja skýrsluhöfundar að aukið jafnrétti kynjanna í heiminum myndi minnka vannæringu, bæta heilsufar fátækra og auka menntun bæði drengja og stúlkna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×