Erlent

Stimpingar í þingsalnum

Felipe Calderon stendur í pontu þingsins en við hlið hans er Vicente Fox, fyrrverandi forseti.
Felipe Calderon stendur í pontu þingsins en við hlið hans er Vicente Fox, fyrrverandi forseti. MYND/AFP

Felipe Calderon þurfti að sæta lagi til þess að geta tekið við forsetaembættinu í Mexíkó í gær af Vicente Fox. Andstæðingar Calderons á þingi reyndu hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir athöfnina.

Fyrr um daginn kom til stimpinga á þinginu og stólum var kastað.

Andstæðingar Calderons hafa aldrei viðurkennt að hann hafi sigrað í forsetakosningunum fyrr á árinu.

Þingmenn úr stjórnarflokknum stóðu vörð um Calderon þegar hann gekk inn í þingsalinn. Hann fór í skyndingu með embættiseiðinn, síðan var þjóðsöngurinn fluttur og þá þögnuðu hróp og köll andstæðinga hans um stundarsakir. Loks flýtti Calderon sér út og þingi var slitið.

„Honum tókst það! Honum tókst það!“ hrópuðu stjórnarþingmenn fagnandi þegar ljóst var að athöfninni væri lokið.

Afar naumur munur var á fylgi Calderons og mótframbjóðandans, vinstrimannsins Andres Manuels Lopez Obrador, sem sjálfur lýsti sig fyrir skömmu vera réttkjörinn forseta landsins.

Erlendir tignargestir voru viðstaddir athöfnina á svölum í þingsalnum, þeirra á meðal George W. Bush Bandaríkjaforseti og Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri í Kaliforníu, sem sagði þegar hann gekk inn í salinn: „Þetta er góður hasar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×